föstudagur 3. september 2010 15:09

SKSiglo.is

Á miðvikudagskvöld mættust KS/Leiftur og KV á Hólsvelli. KS/Leiftur byrjaði leikinn af miklum krafti og sköpuðu sér þó nokkur færi í fyrri hálfleik en ekki vildi boltinn inn og þvert á gang leiksins tóku KV menn forustuna með marki beint úr aukaspyrnu rétt í lok fyrri hálfleiks.  

Fréttir

KS/Leiftur 1 - KV 1

KS/Leiftur vs KV. Ljósmyndari; Gunnlaugur Stefán Guðleifsson

Í seinni hálfleik mættu okkar menn ákveðnir en ekki vildi boltinn inn og áttu léttleikandi KV menn nokkrar skyndisóknir sem vörnin braut á bak aftur.

Slakur dómari leiksins sleppti því að dæma 2 x vítaspyrnu er KV menn handléku knöttinn innan vítateigs svo greinilega að það sáu allir áhorfendur það á vellinum. Það var svo rétt fyrir leikslok að Bjössi Habbós náði að skalla boltann í netið eftir góðan undirbúning Milan og stuttu eftir það björguðu KV menn á línu eftir að Hörður Már prjónaði sig í gegnum vörn KV.

Leikurinn var góð skemmtun fyrir fjölmarga áhorfendur en því miður átti dómarinn ekki góðan dag en svona er boltinn.

Deild

Framsetning efnis

home
fyrirspurnir
veftre
moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn