föstudagur 3. september 2010 15:09

SKSiglo.is

Síldarævintýrið hófst í gær og töluverður fjöldi fólks kominn í bæinn. Það var mikið fjör í bænum í gær og gátu allir fundið sér eitthvað við sitt hæfi.

Fréttir

Síldarævintýrið hafið

Ráðhústorgið
Ráðhústorgið
Síldarævintýrið hófst í gær og töluverður fjöldi fólks kominn í bæinn. Það var mikið fjör í bænum í gær og gátu allir fundið sér eitthvað við sitt hæfi.

Það var mikið fjör í bænum og fólk greinilega komið til þess að njóta lífsins og skemmta sér. Áberandi er hversu mikið er af húsbílum, fellihýsum og tjaldvögnum og var tjaldstæðið orðið þéttskipað í gær.

Torgið síðdegis í gær.



Mikil og góð stemning myndaðist á Torginu þegar Gospel kór steig á stokk og söng undir styrkri handleiðslu hins landsfræga Óskars Einarssonar.



Það var mikið fjör á Rauðkutorgi í gærkvöldi og skemmtu gestir sér vel undir taktfastri og fjörugri tónlist.



Það er alltaf nóg að gera hjá veitingamönnum bæjarins en það er alltaf sjarmi yfir því að skella sér í Fiskbúðina til Eysteins og gæða sér á þjóðlegum réttum.



Það má búast við álíka fjöri alla helgina og skemmtileg dagskrá í boði og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.




Deild

Framsetning efnis

home
fyrirspurnir
veftre
moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn