bjoval.hexia.net/faces/blog/list.do?face=bjoval | Blogg | 12.03.10 | 18:00 | Stefna ehf | Athugasemdir (0)
Mannanna verk
Spár um aukið atvinnuleysi lýsa vel þeirri grafalvarlegu stöðu
sem Ísland er statt í. Met
atvinnuleysi var í febrúar og gert er ráð fyrir auknu atvinnuleysi
fram á árið. Þetta er ein hrikalegasta afleiðing kreppunnar og sú sem
þyngst er að berjast gegn og aldrei má sættast við. En rétt eins og
kreppan sjálf er mannanna verk verður það líka verk okkar allra að vinna
okkur út úr henni. Það
er nokkuð góður samhljómur hvað ástæður þessa ástand varðar, hjá þeim
gestum sem nú heimsækja fjárlaganefnd sem vinnur að undirbúningi
fjárlaga næsta árs. Tóninn er þessi: Á meðan ekki næst að semja um
Icesave-málið við Breta og Hollendinga er tómt mál að endurreisn
atvinnulífsins og þar með að auka atvinnu í landinu.
Vextir munu ekki lækka, fjármögnun nýrra framkvæmda mun ekki verða möguleg, endurfjármögnun nánast ómöguleg og almennt vantraust á Íslandi mun verða okkur öllum til mikils tjóns. Nefnd hefur verið talan 40 milljarðar sem hreint tap þjóðarbússins á síðasta ári einu saman vegna minni umsvifa í atvinnulífinu sökum tafa á lausn Icesave-málsins. Til viðbótar því eru nokkrir milljarðar vegna aukins atvinnuleysis sem rekja má til hins sama auk óheyrilegs vaxtakostnaðar fyrir hið opinbera, einkageirann og heimilin í landinu vegna hárra vaxta sem allt er af sömu rótum runnið, svo dæmi séu tekin. Svo einfalt er það nú að mati þeirra sem hafa tjáð sig um þessa grafalvarlegu stöðu í efnahags- og atvinnumálum landsins. Tjónið er gífurlegt og nokkuð ljóst að það verður ekki bætt fyrir það allt með nýju samkomulagi við Breta og Hollendinga en vonandi næst þó að bæta skaðann að stærstum hluta ef vel er á spilunum haldið.

Á
bak við hvert 1% atvinnuleysi eru 1.700 – 1.800 manns, venjulegt fólk,
fjölskyldufólk sem þarf á atvinnu að halda til að framfleyta sér og
sínum. Talið er að rekja megi 1,5 – 2% atvinnuleysisins beint til þess
að Icesave-málið er enn óleyst. Sé það rétt erum við að tala um að um
eða yfir 3.000 manns séu án atvinnu af þeim sökum. Í því ljósi eru ræður
stjórnarandstæðinga um aukna atvinnu í besta falli móðgun við þetta
fólk, salt í sár þeirra atvinnulausu en þó fyrst og síðast grátlegur
vitnisburður um veruleikafirringu þeirra sem slíkar ræður halda.
Hún
er mikil ábyrgð þeirra sem hafa lagt sig alla fram um að koma í veg
fyrir samkomulag um lausn Icesave-deilunnar.
Heimildir