martasmarta.blog.is/blog/leshringur/ | 20.08.10 | 13:16
Skemmtilegt hlaup fyrir góðgerðarfélögin - frestur til áheita rennur út á miðnætti mánudaginn 23.ágúst
Reykjavíkurmaraþon býður upp á einfalt og frábært fyrirkomulag hlaupastyrkja í samvinnu við Íslandsbanka. Þetta skemmtilega hlaup fer fram núna á sunnudaginn 21.ágúst.
Hver hlaupari getur valið að styrkja þá góðgerðarstarfsemi sem hjartanu er kærust. Hver sem er getur heitið á þá sem hlaupa upphæð að eigin vali. Þannig er hægt að hvetja hlauparana til dáða og láta jafnframt gott af sér leiða. Hægt er að heita á hlaupara fram að miðnætti mánudaginn 23. ágúst. Á vefnum hlaupastyrkur.is má leita fram nöfn þeirra einstaklinga sem hafa skráð sig til leiks með upplýsingum um viðeigandi góðgerðarfélög.


































